Hver er maðurinn?
Facebook-síða GSæm. Fréttir, skilaboð og umræður um hitt og þetta: https://www.facebook.com/gudmundur.saemundsson
Facebook-síðan Íþróttir og siðfræði. Á þessari síðu er umfjöllun siðfræði íþrótta, fréttir og spjall: https://www.facebook.com/rannsokn/
Hurðarbaksættin. Á þeirri síðu eru fréttir af Hurðarbaksættinni, skilaboð og fjöldi mynda: https://www.facebook.com/groups/hurdarbak/
Ég er fæddur í Reykjavík árið 1946, hef búið í Reykjavík, í Ósló, í Bergen, á Akureyri, í Skógum undir Eyjafjöllum, í Växjö, í Lundi. á Laugarvatni og Seltjarnarnesi en bý nú í Grafarholti í Reykjavík. Ég er kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur Kolka MA í íslensku og doktorsnema við HÍ og við eigum saman tvær dætur, Guðbjörgu Kolka og Sóleyju Kolka. Ég á auk þess sex uppkomin börn, 10 barnabörn og 3 barnabarnabörn.
Menntun
- Stúdentspróf máladeildar frá ML.
- BA-próf í íslensku og norsku frá HÍ.
- Cand.mag.-próf í málvísindum, norrænu og íslensku frá Háskólanum í Ósló.
- Kennsluréttindanám við KHÍ.
- Meistaranám í kennslufræðum frá KHÍ-HÍ.
- Doktorsgráða í íþróttafræðum frá HÍ.
Helstu störf
Kennsla
2001-2016: Stundakennari og síðan aðjunkt við KHÍ, síðar menntavísindasvið HÍ.
2011-2016: Fjarkennari í íslensku við Linné Universitetet í Svíþjóð.
1996-2015: Fjarkennari við VMA.
2001-2007: Framhaldsskólakennari við Menntaskólann að Laugarvatni (ML) í íslensku, tölvufræði, uppeldisfræði o.fl. Afleysingarkennari vorið 2012.
1999-2000: Grunnskólakennari við Grunnskólann í Skógum.
1992-1999: Framhaldsskólakennari við Framhaldsskólann í Skógum í íslensku, dönsku, samfélagsgreinum, tölvufræði, námstækni, hraðlestri, bóklegu ökunámi, öryggisfræði o.fl. Sinnti einnig ýmsum skipulags- og skrifstofustörfum fyrir skólann, setti ég upp og stýrði námskeiðum fyrir almenning, svo sem í tölvunotkun o.fl. Skólameistari skólans 1998-1999.
1992-1999: Grunnskólakennari við Framhaldsskólann í Skógum og síðan Grunnskólann í Skógum (8.-10. b.) í íslensku, dönsku, tölvufræði, námstækni, starfsfræðslu, ensku, sinnti hjálparkennslu í íslensku og stærðfræði o.fl.
1979-1984: Kennsla í afleysingum í efri bekkjum Oddeyrarskóla og við Námsflokka Akureyrar (fullorðinsfræðsla).
1972-75: Kennsla í íslensku við Friundervisningen i Oslo.
Stjórnun
Frá 1998: Framkvæmdastjóri Tölvuþjónustunnar BláSkóga ehf. (eigin bókaútgáfa og önnur verkefni).
Haust 2015: Leysti af sem formaður námsbrautar í íþrótta- og heilsufræði framhaldsnáms.
2002-2005: Fagstjóri í íslensku við ML.
2002-2003: Kennslustjóri ML í 25% starfi.
1998-1999: Skólameistari við Framhaldsskólann í Skógum.
1992-1999: Ýmis skipulags- og skrifstofustörf fyrir FSK.
1986-1991: Framkvæmdastjóri Ráðgjafar- og útgáfuþjónustunnar, Reykjavík.
1984-1987: Sérfræðingur hjá Lánasjóði Íslenskra námsmanna við ýmsa skýrslugerð og tölvuhönnun.
Önnur störf
- Starfsmaður á Kleppsspítala í nokkur ár meðfram námi.
- Næturvörður á vistheimilinu Sólborg á Akureyri í rúmt ár.
- Bæjarstarfsmaður á Akureyri í þrjú ár við sorphirðu.
- Sjómennska í þrjú sumur.
- Byggingarverkamaður af og til tímabundið.
- Blaðamennska, m.a. ritstjóri nokkurra blaða um skeið, þ.á m. Nýs lands – frjálsrar þjóðar og Grafarvogsblaðsins.
- Umbrot ýmissa blaða og bóka.
- Þýðingar alls kyns bókmennta.